Stefna KFA
Hlutverk KFA
- Efla gæði þjálfunar í knattspyrnu
- Efla þátttöku knattspyrnu í Fjarðabyggð
- Stuðla að félagsstarfi og forvörnum
- Grípa þau sem skara fram úr og styðja við þau
Hlutverk framkvæmdarstjóra
- Fara yfir og huga að fjárhags- og markmiðaáætlun ráða, veita aðstoð og ráðleggingar vegna þeirra.
- Sjá um rekstur félagsins og ganga úr skugga um það að rekstur KFA sé innan fjárhagsáætlana.
- Að afla fjár til reksturs í samvinnu við aðalstjórn.
- Kemur að skipulagningu og undirbúning fyrir æfinga- og keppnistímabil ár hvert.
- Heldur utan um samninga við leikmenn meistaraflokka ásamt yfirþjálfurum.
- Halda utan um alla kynningu á félaginu til samfélagsins og hagaðila.
- Samræma fjáraflanir deilda/ráða.
- Að taka fyrir aga- og samskiptamál bæði leikmanna og þjálfara.
- Sér um ráðningu á þjálfurum og hafa allar starfslýsingar á hreinu í samstarfi við yfirþjálfara og aðalstjórn.
- Sjá um að þjálfarar tileinka sér Abler og nota kerfið á skilvirkan hátt.
- Gera auglýsingasamninga vegna meistaraflokka og yngri flokka.
- Sjá um samninga vegna akstur í keppnisferðum.
- Sjá um samninga vegna gistinga og máltíða í keppnisferðum í samráði við þjálfara.
- Sér til þess að æfingatöflur séu réttar og birtar á réttum tíma.
- Sér um samskipti við stuðningsaðila.
- Sér um leikja – og mótamál yngri flokka í samráði við yfirþjálfara.
Hlutverk yngriflokkaráðs
Yngriflokkaráð sér um rekstur yngri flokka sem felst í að:
- Skipulega minni fjáraflanir.
- Ræður yfirþjálfara og semur um laun hans.
- Ráða þjálfara hvers flokks í samráði við yfirþjálfara.
- Innheimtir æfingagjöld.
- Kaupir búninga á lið yngri flokka og semur um auglýsingar á þá í samráði við framkvæmdarstjóra KFA.
- Sér um lekja- og mótamál yngri flokka.
- Heldur árlega aðalfund yngriflokkaráðs.
Hlutverk meistaraflokksráðs
Meistaraflokksráð sér um rekstur meistarflokk félagsins sem felst í að:
- Sér um samningsmál leikmanna ásamt framkvæmdarstjóra
- Ræður yfirþjálfara og semur um laun hans.
- Gerir árlega fjárhagsáætlun með framkvæmdarstjóra sem lögð er svo til aðalstjórnar.
- Heldur árlegan aðalfund meistaraflokksráðs.
- Sér um heimaleiki félagsins í samráði við framkvæmdarstjóra.
Hlutverk yfirþjálfara
- Sér um, í samráði við unglingaráð (yngriflokkaráð) og framkvæmdarstjóra, ráðningu á þjálfurum.
- Sér um í samráði við ráðin niðurröðun æfingatöflu vetrarins.
- Er tengiliður í samskiptum við sérsamband sinnar greinar vegna mótamála, keppnisferða, agamála og annars er upp kann að koma í samskiptum milli yngri flokka/meistaraflokks og viðkomandi sambands.
- Tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd móta sem félagið stendur fyrir.
- Setur upp námskrá fyrir áhersluatriði í hverjum flokki.
- Hefur eftirlit með störfum og undirbúningi annarra þjálfara yngri flokka.
- Sér um faglega ráðgjöf öðrum þjálfurum til handa.
- Heldur reglulega fundi með þjálfurum.
- Kemur upp gagnabanka (möppur/bækur/tölvuefni ofl.) vegna þjálfunar.
- Fylgist með undirbúningi og framkvæmd keppnisferða.
- Grípur inn í og er til ráðgjafar þar sem agamál koma upp innan flokkanna, bæði gagnvart iðkendum og þjálfurum.
- Ef um erfið mál að unnið sé eftir leiðbeiningum samskiptaráðgjafa ÍSÍ.
- Er tengiliður við foreldra ásamt framkvæmdarstjóra.
- Situr foreldrafundi flokkanna.
- Sér um samskipti við þjálfara og starfsmenn annarra félaga.

