Siðareglur KFA
Þú sem starfsmaður og/eða í stjórn félagsins
Hefur hagsmuni KFA að leiðarljósi í orðum og athöfnum og erum félaginu til sóma í öllu starfi á vegum þess.
Kemur fram af heiðarleika, sanngirni og heilindum gagnvart sjálfum/sjálfri þér og öðrum.
Átt góð samskipti við alla þá sem starfað er með eða fyrir.
Hefur í huga að orð og athafnir samrýmist starfi, umhverfi, stað og stund.
Kemur fram við alla félagsmenn sem jafningja.
Ert ávallt til fyrirmyndar í hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan.
Hlúir að ímynd KFA í hátterni, samskiptum, viðburðum og í þjálfun og munum ávalt beina okkar ákvörðun á þá braut að efla ímyndina.
Heldur félagsmönnum vel upplýstum og gerum þá virka í ákvarðanatöku eins og hægt er.
Kemur fram af heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum/sjálfri þér og öðrum.
Gætir trúnaðar og þagmælsku í störfum þínum en þó innan takmarkana lögboðinnar tilkynningarskyldu.
Misnotar ekki valdastöðu þína eða hverskonar yfirburði sem þú kannt að hafa yfir öðrum.
Misnotar ekki aðstöðu þína í þágu einkahagsmuna.
Veitir engum sérstaka fyrirgreiðslu á grundvelli persónulegra tengsla.
Gætir jafnræðis og varast að misbjóða virðingu einstaklinga eða hópa t.d. hvað varðar kynþátt, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, félagslega stöðu, aldur, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins.
Tekur aldrei, hvort heldur sem er með beinum eða óbeinum hætti þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði sem þú gætir haft áhrif á.
Þiggur hvorki gjafir eða hlunnindi sem geta leitt til þess að rýra trúverðugleika, sjálfstæði eða hlutleysi þitt.
Notfærir þér aldrei stöðu þína hjá félaginu til eigin framdráttar á kostnað félagsins.
Samþykkir aldrei eða sýnir ógnandi eða ofbeldisfulla hegðun eða áreiti þar með talið kynbundið og kynferðislegt og beitir þér gegn því.
Tekur og beitir gagnrýni á uppbyggilegan og jákvæðan hátt.
Gerir þér grein fyrir því að ef þú brýtur þessar reglur er heimilt að vísa þér úr starfi KFA, tímabundið eða að fullu.
Þú sem yngri iðkandi
Gerir alltaf þitt besta.
Virðir alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í íþróttum.
Sýnir öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
Þrætir ekki eða deilir við dómarann.
Sýnir öðrum virðingu og ert heiðarleg(ur) og opin(n) gagnvart þjálfara og forystufólki félagsins.
Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll á vettvangi félagsins.
Kemur fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
Ert stundvís og háttvís á öllum viðburðum á vegum félagsins.
Tekur þátt í íþróttum á eigin forsendum.
Berð ætíð virðingu fyrir nafni og búningi félagsins.
Þú sem eldri iðkandi
Gerir alltaf þitt besta. Virðir alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í íþróttum.
Sýnir öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum, í meðbyr sem mótbyr.
Þrætir ekki eða deilir við dómarann.
Sýnir öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum, í meðbyr sem mótbyr.
Þrætir ekki eða deilir við dómarann.
Hefur heilbrigði alltaf að leiðarljósi og tekur aldrei áhættu með heilsu þína.
Neytir aldrei ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.
Berð virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra.
Forðast neikvæð ummæli eða skammir.
Ert heiðarleg(ur) og opin(n) gagnvart þjálfara og forystufólki félagsins sem ber ábyrgð á þér við æfingar og keppni.
Berð sjálf(ur) höfuðábyrgð á framförum þínum og þroska.
Ert ávalt til fyrirmyndar í framkomu, jafnt utan vallar sem innan.
Hefur hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda.
Sýnir aldrei eða leyfir ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
Forðast of náið samneyti og náin samskipti við þjálfara þína.
Skalt ætið bera virðingu fyrir nafni og búningi félagsins.
Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um samherja, mótherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
Kemur fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
Mætir vel á æfingar, ert stundvís og háttvís.
Tekur þátt í íþróttum á eigin forsendum.
Þú sem þjálfari
Ert fyrirmynd iðkenda bæði innan vallar og utan.
Hefur ávallt í huga að hlutverk þitt er að byggja upp iðkendur bæði líkamlega og andlega.
Styrkir jákvæða hegðun og framkomu.
Sérð til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda.
Heldur á lofti heiðarleika innan íþróttarinnar.
Viðurkennir og virðir ákvarðanir sem dómarar taka.
Kennir iðkendum að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í íþróttinni.
Ert réttlát(ur), umhyggjusamur/umhyggjusöm og heiðarleg(ur) gagnvart iðkendum.
Forðast neikvæða gagnrýni.
Setur ávalt heilsu, öryggi og heilbrigði iðkenda í forsæti.
Sýnir umhyggju þeim iðkendum sem orðið hafa fyrir meiðslum.
Viðurkennir rétt iðkandans til þess að leita ráða frá öðrum þjálfurum.
Sýnir aldrei eða leyfir ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
Forðast náið samneyti og óviðeigandi samskipti við iðkendur.
Sinnir iðkendum á æfingum en heldur faglegri fjarðlægð þess utan.
Beitir (iðkanda) aldrei kynferðislegu, líkamlegu eða andlegu áreiti.
Notar samskipti í gegnum síma og internetið aðeins til boðunar æfinga og upplýsingagjafar.
Ert meðvitaður/meðvituð um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan.
Talar alltaf gegn neyslu ólöglegra lyfja, fíkniefna, áfengis og tóbaks.
Kemur eins fram við alla iðkendur.
Hefur ávallt í huga að þú ert að byggja upp fólk, bæði líkamlega og andlega.
Forðastu að vera ein(n) með iðkanda.
Berð ætíð virðingu fyrir félaginu og starfsfólki þess.
